Öryggisatriði
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt
eða varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð
eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur
frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal
ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft
áhrif á virkni þeirra.
SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM SVÆÐUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu í námunda við
eldsneyti, sterk efni eða svæði þar sem verið er að sprengja.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
FYLGIHLUTIR
Aðeins má nota samþykkta fylgihluti. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.
K y n n i n g
5