Nokia Car Kit CK 100 - 1. Kynning

background image

1. Kynning

Með Nokia CK-100 bílbúnaðinum geturðu á þægilegan hátt hringt og
svarað símtölum handfrjálst og hlustað á tónlist úr samhæfu tæki.
Hægt er að stjórna bílbúnaðinum með stjórntækinu sem fylgir með.
Bílbúnaðurinn er einnig með raddkvaðningar sem leiðbeina þér
um notkun.

Hægt er að tengja bílbúnaðinn við samhæfan farsíma eða
tónlistarspilara með þráðlausri Bluetooth-tækni.

Lestu þessa notendahandbók vandlega áður en þú lætur fagmenn setja
upp bílbúnaðinn og notar hann. Lestu einnig notendahandbók tækisins
sem þú tengir við bílbúnaðinn. Þar koma fram mikilvægar upplýsingar
um öryggi og viðhald.

Á www.nokia.com/support eða vefsvæði Nokia í heimalandi þínu
finnurðu nýjustu útgáfu af notenda- og uppsetningarhandbókinni,
viðbótarupplýsingar og efni til niðurhals sem tengist Nokia vörunni
þinni.

Varan getur innihaldið smáhluti. Þá skal geyma þar sem lítil börn
ná ekki til.

Aðeins viðurkenndir þjónustuaðilar mega setja upp bílbúnaðinn með
viðurkenndum íhlutum frá Nokia sem fylgja með í sölupakkanum.