Nokia Car Kit CK 100 - Vandræði við að tengjast

background image

Vandræði við að tengjast

Ég get ekki tengt bílbúnaðinn við tækið mitt með Bluetooth-
tengingu.
• Gakktu úr skugga um að kveikt sé á bílbúnaðinum og að hann sé

paraður við farsímann.

• Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth í tækinu.

Bílbúnaðurinn kemur ekki á Bluetooth-tengingu við paraða tækið
mitt þegar ég svissa á bílinn eða kveiki á bílbúnaðinum.
• Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth í tækinu.

• Biddu sérfræðinginn sem setti upp bílbúnaðinn að ganga úr skugga

um að tengivírinn sé rétt tengdur.

• Gakktu úr skugga um að tækið sé stillt á að tengjast sjálfkrafa við

bílbúnaðinn þegar kveikt er á bílbúnaðinum.

Útvarp bílsins er hvorki með steríó- né aukainnstungu.
Biddu sérfræðinginn sem setur upp bílbúnaðinn að nota millistykki sem
gerir þér kleift að tengja snúru bílbúnaðarins við eitthvert annað tengi
útvarpsins (t.d. geislaspilaratengi).

Ég get ekki parað samhæfa tónlistarspilarann minn við bílbúnaðinn.
Gakktu úr skugga um að Bluetooth-lykilorð tónlistarspilarans sé 0000.
Ef svo er ekki skaltu breyta því í 0000 eins og tilgreint er
í notendahandbók tónlistarspilarans.