Nokia Car Kit CK 100 - Öryggisupplýsingar

background image

Öryggisupplýsingar

Fylgdu öllum öryggisleiðbeiningum þegar þú setur upp bílbúnaðinn:

• Aðeins viðurkenndir sérfræðingar ættu að setja upp eða þjónusta

bílbúnaðinn með upprunalegum Nokia-hlutum sem er að finna
í sölupakkningunni. Röng uppsetning eða viðgerð kann að valda
hættu og ógilda alla þá ábyrgð sem kann að vera á bílbúnaðinum.

Notendur skulu hafa það hugfast að bílbúnaðurinn samanstendur
af flóknum tæknibúnaði sem krefst uppsetningar fagmanns með
sérhæfðum verkfærum og sérfræðikunnáttu.

• Þær leiðbeiningar sem er að finna í þessar handbók eiga við um

uppsetningu bílbúnaðarins í bifreið. Þar sem gerðir og tegundir bíla
á markaði eru fjölmargar er ekki hægt að taka mið af tæknilegum
kröfum allra bíla í þessari handbók. Leita skal nánari upplýsinga hjá
framleiðendum bíla um tæknilegar kröfur við uppsetningu.

• Bílbúnaðurinn hentar aðeins til notkunar í bifreiðum með 12 volta

neikvæða jarðtengingu. Önnur spenna eða skautun mun skemma
búnaðinn.

• Hafa skal í huga að í nútíma bílum eru innbyggðar tölvur þar sem

lykilupplýsingar um bílinn eru geymdar. Rangar tengingar við
rafgeymi geta orsakað gagnatap og í kjölfarið mikla vinnu við
enduruppsetningu kerfisins. Ef eitthvað veldur vafa skal hafa
samband við söluaðila bifreiðarinnar áður en hafist er handa
við uppsetningu.

• Ekki má tengja hluti bílbúnaðarins við háspennulínur

kveikjukerfisins.

• Þegar hlutir bílbúnaðarins eru settir upp skal ganga úr skugga um að

enginn þeirra hafi áhrif á stýris- eða bremsubúnað bílsins eða önnur
kerfi hans (t.d. loftpúða) né hindra sýn bílstjóra við akstur. Tryggðu
að bílbúnaðurinn og hlutar hans séu ekki settir upp þannig að af
þeim geti stafað hætta við slys eða árekstur.

background image

U p p s e t n i n g

18

Þegar farsímahalda er fest skal ganga úr skugga um að notandi
símans sjái greinilega á skjá hans.

• Þjónustuaðilinn eða söluaðilinn kann að geta veitt leiðbeiningar

um hvernig hægt sé að koma búnaðinum fyrir í ökutækinu án þess
að bora.

• Ekki skal reykja meðan unnið er við bílinn. Tryggja skal að ekki sé

neitt það nálægt sem veldur eldhættu.

• Gæta skal þess að skemma ekki rafmagnssnúrur, eldsneytis- eða

hemlalagnir eða öryggisbúnað við ísetninguna.

• Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum

ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin, svo
sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi
(með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og loftpúðakerfi. Verði
vart bilunar eða breytingar á virkni slíks kerfis skal hafa samband
við bifreiðaumboðið.

• Kaplarnir þurfa að liggja þannig að ekki sé hætta á að þeir slitni eða

verði fyrir hnjaski (t.d. ekki undir sætum eða á hvössum brúnum).