Nokia Car Kit CK 100 - Notaðu PCU-4 eða CA-153P rafmagnssnúruna

background image

Notaðu PCU-4 eða CA-153P rafmagnssnúruna

Í þessari uppsetningu er hljóð tekið af bílútvarpinu þegar þú hringir eða
svarar símtölum.

SP-3 hátalararnir eru notaðir í símtölum og magnari og tónjafnari
bílútvarpsins eru notaðir fyrir tónlist sem spiluð er á tengda tækinu sem
styður A2DP Bluetooth-snið.

Tónlist sem spiluð er á A2DP tækjum og Nokia Maps leiðsögn sem er
spiluð á sömu tegundir Nokia tækja er beint í AUX-tengi bílútvarpsins.
Til að hlusta á tónlist og leiðbeiningar skaltu velja AUX-tengi sem
hljóðuppsprettu. Ef útvarpið í bílnum er ekki með AUX-tengi er ekki
hægt að hlusta á tónlistina og leiðbeiningarnar sem spiluð eru

background image

U p p s e t n i n g

23

á þessum tækjum í gegnum útvarpið. Í slíkum tilvikum skal tengja CA-
135 eða CA-152 ISO snúru.

1. Tengdu viðeigandi víra PCU-4 eða CA-153P rafmagnssnúrunnar við

rafgeyminn og svissnemann (ef hann er til staðar). Tengdu snúruna
sem slekkur á hljóðinu (ef hún er til staðar) við bílútvarpið.

2. Stingdu rafmagnssnúrunni í viðeigandi tengi á handfrjálsu

einingunni.

3. Tengdu SP-3 hátalarana við viðeigandi tengi á handfrjálsu

einingunni.

4. Tengdu steríóúttak handfrjálsu einingarinnar við AUX-tengi

bílútvarpsins. Notaðu rétta snúru sem passar fyrir útvarpstækið
(hún fylgir ekki með bílbúnaðinum).

Þegar þú hefur gengið frá öllum tengingum skaltu tengja CU-11
stjórnbúnaðinn og MP-2 hljóðnemann við viðeigandi tengi
á handfrjálsu einingunni.

Til að hlaða samhæfan Nokia farsíma með bílbúnaðinum skaltu tengja
annan enda CA-134 hleðslusnúrunnar við handfrjálsu eininguna og
hinn endann við 2,0 mm hleðslutengið á farsímanum.

PCU-4/CA-153P

SP-3

background image

U p p s e t n i n g

24