Nokia Car Kit CK 100 - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

Farartæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum,
séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða
eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi
og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins eða
búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki.
Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð
sem kann að vera á tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða
flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta
úr því eða aukabúnað með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa hugfast að
loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar með talinn
uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða
á útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og
loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.